Lýsing hefur tekið stakkaskiptum síðustu ár og kröfur um lýsingu breyst.

Lýsingarhönnun hefur því þróast mikið.

Lýsing og ljós hefur mikil áhrif á fólk hvort sem það er á heimili, í verslunum eða á vinnustöðum.

Góð lýsing getur bætt líðan, aukið afköst í vinnu og gert umhverfi okkar þægilegra.

Slæm lýsing getur valdið óþægindum og vanlíðan.

Lýsing verður að vera mismunandi eftir því hvaða hlutverki hún á að gegna.

Með því að hafa lýsingarhönnuð frá byrjun getur þú sparað þér mikla vinnu og kostnað í lagfæringum og breytingum seinna meir.

 
Lýsingin skiptir miklu máli og fyrst er að huga að hlutverki rýmisins, ákveða hvar þurfi vinnulýsingu, hvar hún þurfi einungis að vera "kósý" o.s.frv.

Við hjá Fagmenn.is bjóðum uppá ráðgjöf í lýsingu og lýsingarhönnun sem er unnin í samstarfi við eiganda og arkitekt hússins.